Tímaáætlun

Það er ýmislegt sem þarf að huga að fyrir stóra daginn. Hér er tillaga að tímaáætlun til að aðstoða ykkur við skipulagninguna á stóra deginum ykkar.

 

9-12 mánuðum áður

Ákveða og panta kirkjuna eða svæði fyrir athöfnina

Panta prest / athafnarstjóra

Ákveða og panta söng og organista eða annað hljóðfæri fyrir kirkjuna

Panta tíma í hárgreiðslu fyrir brúður ásamt prufutíma

Panta tíma fyrir brúðgumann, brúðarmeyjar og -sveina

Kaupa brúðarkjól, slör, hárskraut, skó og sokkaband. Ekki má gleyma undirfatnaði og skartgripum 

Panta tíma í förðun ásamt prufutíma

Kaupa jakkaföt, skyrtu, skyrtuhnappa, bindi og skó á brúðgumann

Ákveða litaþema

Kaupa eða leigja fatnað á brúðarmeyjar og -sveina

Ákveða hvort það verður hringaberi

Ákveða hver keyrir brúður og brúðguma í kirkjuna og leigja bíl og bílstjóra eftir þörf er á

Útbúa gestalista, boðskort og senda út tímanlega ef fólk býr erlendis

Ákveða hvernig matur verður í boði

Panta sal 

Ákveða skemmtiatriði / söng og panta ef þörf er á

Panta skemmtanastjóra

Ákveða morgungjöf

Panta gistingu fyrir brúðkaupsnóttina

Panta brúðkaupsferðina

Ákveða drykki

Panta ljósmyndara

Kaupa hringana og ákveða skrift innan í hringana.

Ákveða hver stendur með brúðguma og hver leiðir brúður upp að altari

6-9 mánuðum áður

Ákveða hvernig brúðarmeyjar og -sveinar koma inn kirkjugólfið. Stundum dansað eða afhentir drykkir eða dreyft blómum

Panta skraut fyrir salinn, og passa að skipulag á uppsetningu á salnum sé í lagi

Panta brúðarvönd, barmblóm, kastvönd og vendi fyrir börn/brúðarmeyjar/sveina

Ákveða hver muni sækja brúðarvöndin og hin blómin á stóra deginum.

Panta matinn fyrir veisluna

Kaupa morgungjöfina

Kaupa drykkina

Staðfesta lagaval við söngvara

Panta sprey tan og neglur

Bóka mátun í breytingu á fatnaði ef þörf er á

Ákveða hver er með hvaða hlutverk í brúðkaupinu

Panta næturpössun fyrir börnin ykkar og hver mun koma þeim í næturpössun

Kaupa skraut á bílinn

Ákveða hverjir munu halda ræðu eða vera með skemmtiatriði

Panta borðdúka, alltaf panta umfram.

Ganga frá morgungjöf

Bóka afþreyingu og góða veitingastaði fyrir brúðkaupsferðina

Ákveða hver mun sjá um steggjun og gæsun (Passa að velja einhvern sem þið treystið)


3-6 mánuðum áður

Ef þið skreytið kirkjuna, þá þarf að ákveða hver mun setja það upp og taka niður, því tímaramminn er oftast mjög stuttur á milli athafna.

Finna út eitthvað blátt, lánað og nýtt

Panta snyrtingu á skeggi fyrir brúðgumann

Ákveða sætaskipan

Panta snarl fyrir kvöldið

Ákveða hverjir munu hjálpa að setja upp fyrir brúðkaupið og taka niður skrautið daginn eftir

Kaupa hringapúða

 

1-3 mánuðum áður

Panta tíma fyrir æfingu á athöfninni og fara yfir skipulagið

Sækja fatnað sem hafði verið breyttur

Passa að skemmtanastjóri fái afrit af ræðum og setji upp skipulag fyrir veisluna og stilli upp gestum þegar þið komið svo það sé tekið vel á móti ykkur

Ákveða leiki fyrir gesti á meðan beðið er eftir ykkur 

Staðfesta tíma og staðsetningu á ljósmyndara

Ákveða hver aðstoðar brúðurinni að hafa sig til

Ákveða hver aðstoðar börnin að hafa sig til og fylgjast með þeim yfir daginn

Sækja hringana

Panta vottorð um núverandi hjúskaparstöðu 


Viku fyrir brúðkaup

Prufutími í förðun og hárgreiðslu

Klipping fyrir brúður, brúðguma og börn

Æfing fyrir athöfnina

Þrífa bílana

Hafa regnhlíf tilbúna

Undirbúa drykki og snarl fyrir bílana til að grípa í eftir athöfnina

 

Brúðkaupsdagurinn

Sækja brúðarvönd og barmblóm og koma því tímanlega til brúðhjónanna

Ef myndir eru teknar úti, þá taka með sér eitthvað hlýtt til að hlýja sér á milli mynda og hafa plan B fyrir staðsetningu inni ef veður verður slæmt.

Muna eftir hringunum

Muna að borða og drekka vel og njóta dagsins ykkar

Til hamingju með stóra daginn ykkar